Tuesday, July 31, 2007
Copenhagen...

Tha er eg maettur til köben, buinn ad taka vel a thvi a djamminu sidustu helgi....og naesta helgi verdur sennilega entha erfidari thvi ad tha verdur tekid djamm med öllum hinum skolafelögunum....sidasta helgi var djamm med sambylisfolkinu.

Er sem sagt fluttur inn i ibud saman med 3 ödrum guttum, hörku fin hola sem vid fengum og ekki yfir neinu ad kvarta!!

Stundarskrain gaeti eiginlega ekki verdi betri....buinn seinast 14:15 flest alla daga og svo fri annan hvern föstudag!

Hins vegar maetti vedrid vera adeins betra her i DK....nanast bara buid ad vera skyjad og rigining hingad til.

Aetla ad reyna ad vera duglegur vid ad blogga i haust.....thad verdur vist bara ad koma i ljos hversu duglegur madur verdur vid thad hehe

Ingi - Out


Posted at 10:09 pm by ingijons
Segðu eitthvað  




Wednesday, June 20, 2007
Sumarið komið!

Þá varð að því að maður skellti inn einni færslu aftur, ég hef ekki haft nokkurn áhuga á þessu bloggi í vetur enda ekkert merkilegt verið að gerast í lífi mínu....bara vinna og allt það. Skemmtilegustu tímarnir er sá tími sem ég hef náð að eyða með Patreki og á ég eftir að sakna hans svakalega á meðan ég verð í Kðben nú í haust. Ég er búinn að njóta þess að sjá breytinguna á barninu allan vetur, þroskamuninn, stærðarmuninn og allt það. Vonandi næ ég nú að komast aðeinsheim í smá tíma í haust og vera aðeins með honum, veit reyndar ekki hversu auðvelt þar sem hann er jú orðinn 6 ára og byrjar í skóla í haust.....hmmm. Nú er bara mánuður í það að ég flytji til Köben til að KLÁRA f*****g námið og verð því væntanlega orðinn sjóntækjafræðingur um áramótin! Bara hálft ár í skóla og þá er þessum merka áfanga náð....en sennilega á ég eftir að taka nokkra kúrsa áður en yfir líkur seinna meir. Það er alveg hreint ótrúlega skrýtið að hugsa til þess að fyrir 4 árum var ég að reyna að koma mér fyrir úti í DK, bjó heima hjá frænda mínum í 20-30 fm íbúð að leita mér af húsnæði og reynandi að koma mér inn á dönskunámskeið. Þetta fannst mér ótrúlega spennandi og mikið challenge, var eiginlega einn í ókunnugri borg...way bigger than Egilsstaðir.....að reyna að átta mig á  hvernig hlutirnir virkuðu. Málið var náttúrulega hindrun fyrir mig eins og flesta aðra íslendinga sem flytja út, maður hafði bara þessa skóladönsku sem gaggnast manni ekki neitt þegar kemur að því að tjá sig, maður skilur kannski ritmálið sæmilega en það er ekki hægt að tjá sig, nema kannski eftir allmarga bjóra! Ég mætti til köben með þrjár stútfullar íþróttatöskur, sem var það eina sem ég kom með! Var búinn að mæla mér mót við Óla Þór frænda minn sem ég hafði ekki séð í ein 10 ár held ég....hafði ekki hugmynd um hvernig hann leit út, var bara búinn að hringja í hann úr payphone....því gemmsinn minn bilaði þegar ég var að reyna að setja danskt númer í hann, sem gerði það að verkum að ég var símalaus þarna úti til að byrja með. En sem betur fer röbmuðum við frændurinir á hvorn annan án vandræða og ég var þar með óhulltur og gat andað léttar í smá tíma. Næsta mál á dagskrá var að finna einhvern stað að búa á, og tókst mér að hafa upp á herbergi í Rödövre, í frekar niðurslittnu kollegíi. Þar bjó einhver innflytjandi frá einhverju landi sem ég man engan vegina hvað heitir, man bara að dúddinn var múslimi og hann var frá einhverju -akztan landi fyrir miðru asíu...who cares anyway. Hann bauð mér í mat, þar sem hann bauð upp á hrísgrjónarétt og  við borðuðum hann á plastteppi á gólfinu hjá honum. Rúmmið í íbúðinni var svefnsófi úr Rúmfatalagernum af ódýust sort, og að sofa á honum var eftir því! Þessi gaur var eitthvað skrýtinn.....átti ekki neina vini í köben. En ég var kominn með herbergi og það var byrjun. Að fara á dösnsku námskeið náði ég aldrei að koma í verk því miður, þannig að tíminn minn fór aðallega í það að skoða mig um og snúa sólarhringnum við, en það var í lagi því að ég átti það allveg skilið að fá smá breik enda var ég þá búinn að vinna í Birtu nánast slitlaust í 2 ár.
Stuttu eftir að ég flutti inn komu Hlynur, Bjössi, Böggi, Katrín og Gummi til Dk til að fara á Roskilde hátíðina, og okkur áskottnuðust miðar aukalega og þar með var maður að fara þangað án sem var bara frábært.....hef ekki skemmt mér svona vel alla ævi. Hópurinn var svo þéttur og skemmtilegur, allt var bara fullkomið, enda vorum við öll nánast sammála um það að þetta gæti ekki orðið betra! Mikið drukkið, mikið hlegið og mikil þynnka líka!! Ég var 2 daga að jafna mig eftir hátíðina!!
En þegar dúddinn sem ég var að leigja af kom heim aftur frá Kanada eftir mánaðartúr fékk ég að flytja aftur inn til Óla frænda , bara rétt þangað til að skólinn byrjaði. Svo daginn áður en að skólinn byrjaði flutti ég inn á heimavist sem optikerar gátu búið. Þessi heimavist minnir mann mikið á heimavistina í Egilsstöðum fyrir utan það að maður gat komið og farið eins og maður vildi og maður mátti drekka bjór á fimmtudagsbarnum.....annað var eiginlega eins! Þetta var nokkurskonar barnaheimili fannst mér, þar voru allveg krakkar frá 18 ára og upp í 40 fólk. En þetta vandist, ég bjó fyrst með tyrkneskum dana í tvær vikur, en svo flutti Even snillingur með meiru inn til mín. Hann var sem betur fer í sama námi og ég, norskur spéfugl sem kann ýmislegt fyrir sér, og samdi okkur bara vel saman. Svo þegar skólinn byrjaði var ég einfaldlega eins og retard, maður skilldi kannski 30-50% af því sem kennarinn var að segja. En með mikilli vinnu og eljusemi tókst mér að koma mér betur inn í tungumálið á stuttum tíma, en það tók líka langan tíma að læra í byrjun! Til þess að skila allt betur þýddi ég allan texta yfir á íslensku.....en það hjálpaði líka helling. Þegar í stað tókst mér að finna mér góðan vin í bekknum, það var hann kenneth.....frekar lítill þéttur ávalt brosandi dökkur á hörund gaur. Mér leist ekkert á hann þegar ég sá hann í byrjun.....enda var þetta dæmi um það að maður á ALDREI að dæma fólk eftir útlitinu! Fyrsta skóladaginn kom hann upp að mér og settist hjá mér og kynnti sig. Við tengdumst strax.....urðum stoð og stytta hvors annars má segja, enda vorum við báðir í ókunnugu umhverfi, því hann er frá Noregi, átti konu og barn heima og hafði í rauninni aldrei verið þessi skólatýpa. Ég er svo feginn að hafa fengið að kynnast þessum manni, enda er ég þarna kominn með vina að lífstíð. Ég er búinn að heimsækja hann tvisvar, og er á leiðinni í heimsókn til hans í 3. skiptið í september í brúðkaupið hans. Get ekki beðið eftir að komast aftur til Þrándheima og hitta þau aftur.
Hvað um það, þetta er víst orðinn aðeins lengi pistill en ég ætlaði mér í byrjun en ég held samt sem áður áfram.
Á einhvern ótrúlegan hátt tókst mér að útvega mér samning hjá danskri gleraugna keðju, og líka í Köben af öllum stöðum! Mamma vill meina að það hafi verið einhver að vaka yfir mér....kannski kannski ekki. En á einhvern ótrúlegan hátt tókst mér að verða mér úti um samning hjá framsæknasta gleraugnafyrirtæki danmerkur. Ég reyndi eftir fremstu getu að tala dönsku og koma sem best fram, og það virkaði líka svona vel, því nokkrum dögum seinna fékk ég símtal frá Söreni starfsmannastjóra Louis Nielsen um samningsboð.......ég fraus eiginlega, því hann þurfti að segja eftir smá pásu........viltu samninginn eða ekki, því að það kom ekkert response frá mér í smá tíma hehe....
Nú má segja að ég sé búinn að fara léttilega yfir hvað gerðist hjá mér fyrsta hálfa árið þarna úti.....aldrei að vita nema ég skelli meiru inn bráðlega ef ég nenni.
Næsta hálfa árið verður vonandi jafn viðburðarríkt og það fyrsta. Ég kem til með að búa með 3 öðrum strákum í flottir íbúð, tveir sænskir og Even norski. Allir ungir, 3 á laf lausu er bara ávísun á góða tíma!!!
Takk fyrir mig í bili
Ingi



Posted at 02:15 am by ingijons
Segðu eitthvað  




Thursday, January 25, 2007
Rólegheit

Rólegt að gera í vinnunni þessa dagana enda vill það oft fylgja þessum árstíma. Túnisar teknir í bakaríið í gær á HM, en það leit reyndar ekki út fyrir það á tímabili og manni leist ekkert á blikuna. Sem betur fer hrukku strákarnir í gang og rúlluðu þessu upp í fyrri hálfleik og nú er bara að vona að allt gangi upp á móti Pólverjum í dag. Pólverjar eru raun með hörku lið en ég held samt að við eigum að taka þá, en það gerist ekki nema með góðri vörn.

Nú er helgina að nálgast, ég er ekki með strákinn um helgina og á laugardag er planið að kíkja í smá afmælisboð til Bjössa og reyna að gera eitthvað skemmtilegt. Eflaust kíkjum við í bæinn þegar líður á kvöldið og reynum að tjútta aðeins einhversstaðar. Fyrst þarf maður víst að vinna í 2-3 daga áður en af því kemur.

Jæja.....best að halda áfram að gera ekki neitt.


Posted at 01:54 pm by ingijons
Segðu eitthvað(1)  




Tuesday, January 23, 2007
Til hamingju Ísland

Með sigurinn í gær sem var virkilega sætur eftir tapið á móti Úkraníu daginn áður. Men fóru alveg hreint á kostum allan leikinn og er það í raun ótrúlegt að við skulum hafa unnið leikinn eins stórt og raunin varð. Þetta er einmitt lýsandi dæmi um það hvernig hægt er að snúa mótlæti sér í hag og mæta einbeittur til leiks....það skiptir svakalegu máli. Næsti leikur á morgun á vinnutíma eða klukka 16:30, en það þýðir ekki að örvænta, maður tekur einfaldlega sjónvarpið bara með sér í vinnuna og vonar það að fólk sé ekki mikið að kaupa gleraugu á meðan! Held að við ættum að geta unnið Túnis, þó mega menn ekki vanmeta þá því það hefur sýnt sig að þessi Afríkuríki geta vel spilað bolta. Á eftir þeim eru það svo Pólverjar sem sýndu smá lit og unnu Þjóðverja, en eins og með Túnis á ég vona að við vinnum þá, því við höfum verið að vinna þá í æfingjaleikjum síðustu tvö ár. Samt sem áður getur allt gerst sérstaklega ef menn eru ekki með hausinn í leiknum. Slóvenar eru óskrifað blað, en sennilega verður það erfiðasti leikurinn í milliriðlinum ásamt leiknum á móti Þjóðverjum á sunnudag. Eitt er víst......ég verð límdur fyrir framan kassan og hvet strákana áfram.

Annars er ég frekar sáttur með það að frosthörkurnar skulu vera búnar í bili, og læsingin á bílnum mínum farinn að virka aftur.....jeiii


Posted at 01:51 pm by ingijons
Segðu eitthvað  




Monday, January 22, 2007
Gleðilegt ár

Þá er nýja árið gengið í garð og leiðinlegasti tími ársins hafinn með tilkomandi myrkri og kulda. Þessar frosthörkur eru búinn að vera í gangi nógu lengi held ég bara, en þó er eins og maður sé farinn að venjast kuldanum ótrúlegt en satt.

Mikið djöfulli drullaði landsliðið á sig á móti Úkraínu í gær, það var ekki beint til að bæta skapið eftir að hafa séð Man Utd tapa á móti fuuccking Arsenal á grátlegan hátt....og til að bæta allt tapaði Rockets líka í gær! En life goes on og maður jafnar sig á svona löguðu. Leikur á móti Frökkum í kvöld, sem á eftir að tapast, held barasta að við eigum engan möguleika á móti þeim. Óli Stef er gjörsamlega bitlaus þar sem hann virðist ekki geta skotið á markið og það verður svo fyrirsjáanlegt í sóknarleiknum. Nú hefði það verið gott að hafa bombaran Hólmgeirsson til að hrista aðeins upp í sóknarleiknum. Annar leikur í kvöld á eftir að vera svakalegur...Noregur- Danmörk. Þar er ég nokkuð viss um að danirnir taki þetta á reynslunni og skilji norsarana eftir með sárt ennið.

Íbúðarleit fyrir næstu önn er kominn í gang, maður er farinn að svipast um eftir einhverju bitastæðu, búinn að senda úmsókn á gamla kollegíið mitt. En mest langar mig þó að leigja með nokkrum skólafélögum í Frederiksberg, Nörrebro, Vesterbro sem dæmi. Á ekki von á því að okkur takist að finna 5 herbergja íbúð með húsgögnum sem liggur miðsvæðis. Ef ég væri að fara að leigja mína íbúð held ég að 4 strákar væri ekki fyrsti valkosturinn. En ef einhver veit um lausa íbúð frá ágúst til desember give me a call please.

Jæja....best að halda áfram að vinna.


Posted at 10:50 am by ingijons
Segðu eitthvað  




Sunday, December 10, 2006
Jólahvað!

Þá fara jólin víst að nálgast með öllu stressi og öðru tilheyrandi sem því fylgir, en þó aðalega mat og drykkju í mínu tilviki. Ég fer austur 23. des og kem aftur 2. jan, sé fram á það að ná að slappa nokkuð vel af á þeim tíma, enda kærkomið. Nú er maður rétt farinn að huga af jólagjafa innkaupum sem er hinn mesti hausverkur að mínu mati enda er ég með eindæmum hugmyndalaus í þeim efnum, væri lang einfaldast að gefa bara kort með pening og hananú. Sem betur fer er ekki eins mikið að gera í gleraugnabúðum og í gjafavöruverslunum fyrir jól, því ég vorkenni öllu verslunarfólki sem stendur á haus þennan mánuð, vinnandi alla daga hafandi engan tíma fyrir eitt né neitt.

Um miðjan Nóvember var tekið eina netta utanlandsferð til Köben ásamt Bjössa og Óla Steina í þeim tilgangi að væta aðeins í sér kverkarnar og hitta vini og kunningja. Ferðin byrjaði á Airport horror öryggistjekki þar sem ég komst að því að mysingur er vökvi.....vissi ekki betur en að mysingur væri ostur, en heilastarfssemin var ekki nægilega góð á þessum tíma til að rífast við öryggisverðina enda klukkan rétt orðin 6 um morgunin. Til að gera langa sögu stutta var eftirfarandi gert...drukkinn bjór, farið í bæinn, spilaður körfubolti, spilað minigolf, einn vel skennktur öl panntaður,  þythokkí (þar sem ég rúlaði) og röllt niður strikið nokkru sinnum í viðbót. Við vorum á gistiheimili á Amager yfir helgina, og skil ég það ekki enn þann dag í dag að okkur var ekki hent út því að þvílík voru lætin í okkur þegar við vorum að koma heim af djamminu að það heila var hálfa en nóg. Ég vil þakka Hlyn, Mána, Bögga, Gumma, Vigfúsi, Baldri, Didda og öllum hinum fyrir meiriháttar helgi og ég get ekki annað en hlakkað til að flytja aftur til Köben í sumar og taka vel á því síðasta hálfa árið sem á eftir af náminu.

Fór á holtið um daginn með vinnunni að borða. Og því miður var sá staður ekki að undir væntingunum sem maður gerði sér og fékk ég þar eina verstu hreindýrasteik sem ég hef fengið. Við vorum öll sammála um það að maturinn var einfaldlega alls ekki góður, frekar súrt því að það er ekki ódýrt að borða þar. Það jafnast ekkert á við matinn hjá mömmu og á ég von á að jólasteikin bregðist mér ekki.....miklu betri en á Holtinu.

Ætli maður láti þetta ekki nægja í bili.....læt heyra í mér eftir aðra 3 mánuði aftur ;)


Posted at 08:13 pm by ingijons
Segðu eitthvað(2)  




Friday, September 08, 2006
Boltakvöld

Í gærkvöldi var sannkallað boltakvöld í gangi.....Ísland að spila í fótbolta og körfu. Því miður gekk ekki vel, reyndar voru strákarnir í körfunni skárri en fótboltanum. En Magni hélst inni í Rockstar svo að það gekk eitthvað vel það kvöldið.

Noregsför eftir viku með Óla bróðir og co þar sem brósi er að fara taka þátt í síðustu umferðunum í heimsbikarnum. Vonandi að bíllinn bili ekki eins og vanalega.

Pabbahelgi um helgina sem þýðir ferð í sund eða bíó.....það verður jú að hafa drenginn ánægðan :D.....það er svo sem ekkert að því, góð afsökun fyrir mig að fara og sjá teiknimyndir! hehe

Það er búið að vera frekar rólegt í vinnunni og maður ætti eiginlega að nota tíman í að sjónmæla vini og vandamenn. Ég þarf að skila 20 ítarlegum sjónmælingum fyrir lok mánaðarins og ég er bara búinn með 2! Jæks!

Takk fyrir í dag.....later


Posted at 12:07 am by ingijons
Segðu eitthvað(2)  




Friday, September 01, 2006
Lífið á Íslandi

Nú er maður fluttur aftur á klakan og farinn að vinna eins og maður aftur, reyndar er þetta starfþjálfun og er þar með hluti af náminu. Nú er ég loksins farinn að gera næstum alla þá hluti sem alvöru sjóntækjafræingar gera þ.e. sjónmæla fyrir gleraugum og linsum og auk þess að vera á verkstæðinu. Fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna í búð sem heitir Gleraugað og er hún staðsett í einu af bláu húsunum í Faxafeni. Við erum þrjú að vinna þar og ég get ekki sagt annað en að ég er virkilega sáttur með hvernig allt er búið að ganga, þau eru frábær og við smellum vel saman. Auk þess er það mikill munur að þurfa ekki að standa í leiðinda tungumála erfiðleikum eins og oft í DK þó svo að stundum á maður í mestu erfiðleikum með að útskýra hluti sem maður lærði á dönski yfir á íslensku. Sem dæmi um það tölum við "optikerarnir" alltaf um faglegu hlutina á dönsku, því annars gætum við ómögulega gert okkur skiljanlega. Partur af djobbinu er að sjónmæla fólk, og maður fær alls konar fólk inn til sín sem er að vissu leiti gaman en getur verið erfitt. Um daginn fékk ég tælenska konu sem talaði frekar bjagaða íslensku, svo fékk ég líka hálf heyrnarlausan karl sem ég þurfti næstum að öskra upp í eyrað á svo dæmi sé tekið. En það besta við þetta er þegar maður nær að hjálpa fólki sem er í vandræðum, og þegar það heppnast líður manni virkilega vel á eftir, því að það kemur fyrir að maður tekur sjénsa og prófar hluti sem gætu alls ekki virkað en þegar þeir virka kemur góð sælutilfinning í kroppinn.

Nú er ég sem sagt búinn að vera heima í 2 mánuði og ég er búinn að koma mér fyrir í lítilli íbúð í Hafnarfirði. Það má segja að ég hafi algjörlega breytt um lífstíl eftir heimkomuna, ég er kominn á bíl, loksins farinn að geta verið með Patreki um helgar, nánast hættur að djamma. Auðvitað eru það sumir hlutir sem ég sakna frá DK, en þetta var ákvörðun sem ég tók því mig langaði að breyta til og vera nálægt mínum nánustu. Í rauninni finnst mér svoldið skrýtið að vera kominn heim aftur, mér finnst eins og ég sé að byrja frá núlli eina ferðina en, og ég á eftir að fara til DK í skóla í eina önn í viðbót sem þýðir að ég er ekki en hættur! Hvað með það, ég er ekki svartsýnið manneskja, heldur lít ég fram á veginn og reyni að gera það besta úr stöðunni.

Ég og Patrekur skruppum til Egilsstaða um verslunarmannahelgina, og ákvað ég að fara keyrandi með okkur austur. Man fólk ekki hverning það var að fara í langferð með mömmu og pabba í gamla daga?? Það var eins tíminn stæði kyrr!! Þannig held ég nefnilega að Patreki hafi liðið :D. Hann byrjaði á " Are we there yet" á Hellu og sveijaði og tautaði afhverju við hefðum ekki flogið!! Hehe. En á Egilsstöðum létum við fara vel um okkur í góða veðrinu, og loksins var hægt að sleikja sólina aðeins. Ég flutti frá DK 30. júní og þeir sem búa í RVK vita að það sást varla til sólu allan júlí, en aftur á mói var júlí mánuður heitasti mánuðurinn í DK í 40-60 ár með meðalhita um 19 gráður.......hmmmmm andskot.

Eftir hálfan mánuð ætla ég að skreppa til Noregs til þess að fylgjast með Óla bróður keppa í heimsbikarkeppninni í Torfæru og auk þess að heimsækja vini mína þar. Óli er einmitt að fara til Finnlands um helgina til að keppa í sömu keppni þar og vona ég innilega að dollan bili ekki, en ef eitthvað er að marka árangur sumarsins má hann alveg eins eiga vona á því.....but I keep my fingers crossed.

Því miður er ég ekki farinn að hitta allt það fólk sem ég þekki hér, en ég hef haft gaman af þeim sem ég hef hitt þanga til núna. Er búinn að hitta Óla Steina og kærustuna hans tvisvar síðan ég kom, ekkert nema gaman af því.

Jæja þá.....best að hætta þessu: Og ekki vera hrætt við að láta heyra í ykkur fólk!


Posted at 12:26 am by ingijons
Segðu eitthvað  




Monday, July 17, 2006
Ísland

Fluttur aftur heim til þess að vinna, verð á Íslandi næsta árið.

Kominn með íbúð í Hafnarfirði og er með sama gamla símanúmerið 869-6804.

Meira blogg seinna þegar ég verð kominn með netið heim.


Posted at 11:51 am by ingijons
Segðu eitthvað(1)  




Tuesday, May 09, 2006
Ég var blokkaður illa af Rune Klahn í dag

Það þýddi ekkert annað en að taka smá streetball áður en góða veðrið hætti, enda er það orðið langt síðan maður hefur spilað útibolta. Við strákarnir erum vanir að spila á velli í Kongens Have sem er stór almenningsgarður niðri í miðbæ. Þar eru vanalega hinir og þessir að spila og stundum er skipt í lið og spilað á allan völlinn. Í dag lenti ég svo í því að spila á móti Rune Klahn, sem er "heimsfrægur" í danmörku fyrir sín frekar villtu og viðbjóðslega fyndnu stand up show. Það var bara ég sem kannaðist við hann af öllum íslensku strákunum sem voru að spila í dag svo að kannski finnst fólki það ekkert merkileg :)......en það sem að er merkilegast við þetta allt saman er það að þeir sem þekkja til hans vita kannski hvernig maðurinn er vaxinn, og er hann til að gera langa sögu stutta það ekki. En honum tókst samt sem áður að blokka mig 2-3 í dag sem er alltaf jafn niðurlægjandi in the game of basketball!

Það er líka orðið langt síðan ég henti línum hingað inn og það helsta sem gerst hefur hjá mér er eftirfarandi:

- Ég er að flytja heim í lok júní í sumar þar sem að ég hef fengið samning á Íslandi hjá Glerauganu sem er staðsett í einu af bláu húsunum við Faxafen.

- Ég er orðinn gamall kall því að ég á barn sem er 5 ára.....!! Takk fyrir það :) Patrekur Leó átti afmæli þann 5. maí og ég verð 27 ára gamall þann 15. maí og hlakka ég ógeðslega mikið til að geta verið meira með honum.

- Nú fer prófatíminn að bresta á bráðum, slatti af prófum næstu vikur og stóra lokaprófið er svo þann 7. júní.

- Ég fór heim um páskana í fyrsta skiptið síðan ég flutti hingað út og ég get ekki annað sagt en að ég hafi haft það allt of notalegt. Þetta var eiginlega nákvæmlega eins og um jólin, algjör afslöppun og eilíft át, og auðvitað leið tíminn allt of fljótt.

- Ég skrapp til Odense fyrstu helgina í apríl í afmæli til Ragnhildar og fleiri. Það er jú auðvitað alltaf jafn gaman að kíkja í "sveitina" og heilsa upp Mána. Það var hin besta skemmtun og það er sjaldan sem að maður byrjar að sötra bjór upp úr klukkan þrjú :) . Sem auðvitað endaði sem að maður gafst snemma upp. Tusund tak!

Annars held ég svei mér þá að lítað annað hafi gerst hjá mér upp á síðkastið.

Það er sem er á döfinni er eftirfarandi:

- Reyna að sleikja sólina eins mikið og hægt, grilla og spila streetball áður en góða veðrið hættir. Það lítur því miður  út fyrir það að það verði nú um helgina sem.....

- Slæmt fyrir Bjössa og vinnufélaga hans sem eru að koma á árshátið með Skjá Einum á föstudag. Maður vonar að hann láti það ekki bögga sig og geri það besta úr ferðinni. Ef ég hef heyrt rétt, þá kemur Gummi líka il köben frá Odense um helgina, og þá er nú vona á dúndur fjöri.

- Helgina þar á eftir verður lokahófa hjá körfunni/Eurovision pary. Það á bara eftir að vera dauði og djöfull með öfurölvun sem fylgir alltaf svona samkomum.

- Næstu tvær helgar á eftir lokahófinu fæ ég aftur heimsókn, þannig að það er nóg að gerast þennan mánuðinn.

Þá er bara að vona að allt gangi smooth og fara að horfa á  24.

 

 

 


Posted at 08:54 pm by ingijons
Segðu eitthvað(3)  




Next Page
 

Nafn: Ingi Björn Jónsson

Staður: Kaupmannahöfn Dk

Staða: Optikernemi


   





 
<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31






 
Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed

Annað

IF Guðrún

Myndir

Myndir2

Blogdrive