Þá fara jólin víst að nálgast með öllu stressi og öðru tilheyrandi sem því fylgir, en þó aðalega mat og drykkju í mínu tilviki. Ég fer austur 23. des og kem aftur 2. jan, sé fram á það að ná að slappa nokkuð vel af á þeim tíma, enda kærkomið. Nú er maður rétt farinn að huga af jólagjafa innkaupum sem er hinn mesti hausverkur að mínu mati enda er ég með eindæmum hugmyndalaus í þeim efnum, væri lang einfaldast að gefa bara kort með pening og hananú. Sem betur fer er ekki eins mikið að gera í gleraugnabúðum og í gjafavöruverslunum fyrir jól, því ég vorkenni öllu verslunarfólki sem stendur á haus þennan mánuð, vinnandi alla daga hafandi engan tíma fyrir eitt né neitt.
Um miðjan Nóvember var tekið eina netta utanlandsferð til Köben ásamt Bjössa og Óla Steina í þeim tilgangi að væta aðeins í sér kverkarnar og hitta vini og kunningja. Ferðin byrjaði á Airport horror öryggistjekki þar sem ég komst að því að mysingur er vökvi.....vissi ekki betur en að mysingur væri ostur, en heilastarfssemin var ekki nægilega góð á þessum tíma til að rífast við öryggisverðina enda klukkan rétt orðin 6 um morgunin. Til að gera langa sögu stutta var eftirfarandi gert...drukkinn bjór, farið í bæinn, spilaður körfubolti, spilað minigolf, einn vel skennktur öl panntaður, þythokkí (þar sem ég rúlaði) og röllt niður strikið nokkru sinnum í viðbót. Við vorum á gistiheimili á Amager yfir helgina, og skil ég það ekki enn þann dag í dag að okkur var ekki hent út því að þvílík voru lætin í okkur þegar við vorum að koma heim af djamminu að það heila var hálfa en nóg. Ég vil þakka Hlyn, Mána, Bögga, Gumma, Vigfúsi, Baldri, Didda og öllum hinum fyrir meiriháttar helgi og ég get ekki annað en hlakkað til að flytja aftur til Köben í sumar og taka vel á því síðasta hálfa árið sem á eftir af náminu.
Fór á holtið um daginn með vinnunni að borða. Og því miður var sá staður ekki að undir væntingunum sem maður gerði sér og fékk ég þar eina verstu hreindýrasteik sem ég hef fengið. Við vorum öll sammála um það að maturinn var einfaldlega alls ekki góður, frekar súrt því að það er ekki ódýrt að borða þar. Það jafnast ekkert á við matinn hjá mömmu og á ég von á að jólasteikin bregðist mér ekki.....miklu betri en á Holtinu.
Ætli maður láti þetta ekki nægja í bili.....læt heyra í mér eftir aðra 3 mánuði aftur ;)