Rólegt að gera í vinnunni þessa dagana enda vill það oft fylgja þessum árstíma. Túnisar teknir í bakaríið í gær á HM, en það leit reyndar ekki út fyrir það á tímabili og manni leist ekkert á blikuna. Sem betur fer hrukku strákarnir í gang og rúlluðu þessu upp í fyrri hálfleik og nú er bara að vona að allt gangi upp á móti Pólverjum í dag. Pólverjar eru raun með hörku lið en ég held samt að við eigum að taka þá, en það gerist ekki nema með góðri vörn.
Nú er helgina að nálgast, ég er ekki með strákinn um helgina og á laugardag er planið að kíkja í smá afmælisboð til Bjössa og reyna að gera eitthvað skemmtilegt. Eflaust kíkjum við í bæinn þegar líður á kvöldið og reynum að tjútta aðeins einhversstaðar. Fyrst þarf maður víst að vinna í 2-3 daga áður en af því kemur.
Jæja.....best að halda áfram að gera ekki neitt.