 |
|
Wednesday, March 29, 2006
Jú.....ég nennti að blogga!
Nú er tímabilinu hjá okkur formlega lokið þar sem síðasti leikurinn sem við áttum eftir var gefinn og við náðum þar með að hala inn 6 stigum á mjög stuttum tíma og þar af leiðandi erum við í 7. sæti deildarinnar eins og er! En við getum endað í 8. sæti þó v föllum við ekki, og þar með er alles gút! Auðvitað reynir maður nú að mæta á æfingar bara til þess að hrista af sér spikið og taka nokkrar velvaldar æfingar....street style! Svo er maðurinn (ég) að dunda við það að byrja að lyfta, en það hef ég aldrei nennt að gera, svo að það verður fróðlegt að sjá hvort maður haldi sér við efnið. Það leiðinlega við að lyfta er byrjunin....þeas að koma sér í gang og vera með harðsperur dauðans í byrjun....eins og ég er með right now :( .
Helgin - Eftir vinnu á laugardag verður hoppað upp í næstu lest og brunað í afmæli til Mána og family in Odense City. Þar eru Ragnhildur og vinkonur hennar að halda upp á afmæli saman. Þar verður fjörðið væntanlega í botni og allt í lagt í rúst!
Skólinn - Hólí móli....þar er sko allt of mikið í gangi í einu! Það er gjörsamlega troðið alls konar vitleisu í kollinn á manni og ætlast til þess að maður munni fullt af drasli sem maður á svo eftir að nota í c.a. 5-10% af tilvikum.....hmmmmm....ennn thats life. Auðvitað eru svo 2-3 próf rétt fyrir páskafríið til þess að maður fari nú ekkert að slaka á.....það væri bara stórslys!
Ég verð nú bara að nefna eitt, og koma þökkum til skila:) Stebbi, Sóley og Margrét takk fyrir lambalærið um síðustu helgi! JÖMMÍ!!
Ingi - farinn að læra, því ekki veitir af.
Posted at 05:52 pm by ingijons
Permalink
Wednesday, March 22, 2006
Loksins tókum við strákarnir í Guðrúnu saman í andlitinu og fórum að spila körfubolta sem leiddi til þess að tveir sigrar urðu að veruleika um helgina :) Loksins loksins gátum við verið glaðir, og það tvo daga í röð! Við byrjuðum á því að spila við botn liðið Hilleröd á laugardeginum, og voru þeir frekar auðveld bráð og var sigurinn aldrei í hættu. Allir fengu að spila og auk þess náðu líka allir að skora, sem gerist ekki á hverjum degi. Daginn eftir áttum við líka leik á móti Baltic sem er lið frá innra Nörrebro hverfinu. Í þessu liði eru meira eða minna bara innflytjendur (mest annarar kynslóðar) og allgjörir wanabe niggers. Það var ekki nóg að leikurinn var settur á á sunnudegi eftir annan leik, heldur var hann klukkan 9 um morguninn sem þýddi það ég fór á fætur klukkan 7 um morguninn:(. Sem betur fer náðum við að knýja fram sigur í miklum baráttuleik með litlu stigaskori!. Leikurinn endaði sem sagt 46-43 fyrir okkur. Með sigrunum náðum við að koma okkur úr 9. sæti upp í 7. sæti, en það getur enþá breyst, og til þess að halda okkur í deildinni þurfum við að vinna annað lið sem er með jafn mörg stig og við. Ég hef engan áhuga á því að fara sömu leið og mínir menn í Hetti! Leiknum var upphafalega frestað, svo gáfu þeir leikinn en nú er staðan sú að þeir við sennilega spila hann.....enginn veit hvar og hvenær, en eitt er ljóst að allt verður lagt í að vinna þennan leik.
Skólinn er alltaf á fullu og þar er alltaf nóg að gera, próf verkefni og svoleiðis leiðindi.
Páskafrí nálgast óðum, fer heim 7. apríl og verð í c.a. tvær vikur. Það verður agalega gott að komast heim og hafa það gott.
Hef annars lítið að segja eins og vanalega, er reyndar með áskorun! Hverjir eru að skoða þessa síðu?? Endilega skiljið eftir comment!!
Later - people
Posted at 04:44 pm by ingijons
Permalink
Tuesday, February 28, 2006
að ég er á lífi en nenni engan vegin að blogga......
Það gæti hinsvegar komið alvöru færsla frá mér eftir helgi ef við vinnum leikinn á laugardag....en ef ekki....heldur bloggleysið áfram.
Ingi - orðinn þreyttur á því að tapa
Posted at 11:44 pm by ingijons
Permalink
Tuesday, January 24, 2006
Sem var með rólegri hætti, karfa föstudag, sunnudag og mánudag. Ég naut þess virkilega að slappa vel af og sofa út.....óþunnur...hehe.
Síðasta sunnudag spiluðum við fyrsta leikinn á árinu. Loksins leit út fyrir að við myndum loksins ná í fullt lið og þar með ekki þurft að keyra á sömu 6-8 mönnunum, en auðvitað tókst einum að meiða sig í upphitun og auk þess var annar sem hafði ekki mikla reynslu af því að spila alvöru bolta, en 9 manns er þó ásættanlegt. Leikurinn fór ágætlega af stað, þrátt fyrir lágt stigaskor hjá báðum liðum og í hálfleik var munurinn 4 stig okkur í hag. Það virðist því miður eitthvað vera að hjá okkur þegar að 3. leikhluti byrjar, því að við gjörsamlega skitum á okkur í leikhlutanum og hinir skoruðu 26 á móti 5! Og við skoruðum fyrstu stigin okkar eftir 8 mínútur....og því þarf ekki að spyrja hvernig leikurinn fór.....ok hann fór 63-43. Það er ljóst að menn þurfa að taka sig saman í andlitinu fyrir næsta leik, við eigum að geta spilað mikið betur en við sýndum í þessum leik. Ljósu punktarnir við leikinn voru að loksins var meðalhæðin orðin miklu hærri, og í fyrsta skiptið í vetur var skortur á bakvörðum. Þó ég hafi ekki verið sáttur með mína spilamennsku náði ég þó að setja 3 þrista og klára leikinn með 14 stig, en ég átti allt of marga tapaða bolta og lélegar sendingar. Nú er bara að hætta að væla og taka sig á fyrir næsta leik....það er að segja ef lappirnar á mér verða í lagi. Hvað er það? Er ég orðinn svo gamall að kroppurinn er bara að gefa sig? Um daginn fékk ég allt í einu bara þennan þvílíka verk í beininu fyrir neðan hnéð á miðri æfingu...where came u from and when are going? Og auðvitað er beinhimnubólgan á sínum stað, og minnir hressilega á sig. Og á æfingu í gær varð ég bara gjörmsamlega að hætta útaf verkjum.Ég hef ekkert tíma til að vera meiddur!!....Nenni því ekki...hehe!
Næsta helgi verður sennilega líka róleg, karfa föstudag, vinna laugardag og leikur sunnudag. Reyndar er leikurinn um kvöldið og því er smá svigrúm til smá ölþambs ef tækifæri birtist, sem er mjög liklegt því að það er kollegíparty hér í samkomusalnum, en það kemur bara allt í ljós.
Snjórinn hér í köben virðist seint ætla að hverfa, þetta er sennilega það mesta sem ég hef upplifað síðan ég flutti út. Samgöngur ganga enþá hægt enda eru þessir vesalingar alls ekki vanir svona löguðu.
Best að láta þetta nægja í bili.....later
Posted at 06:42 pm by ingijons
Permalink
Thursday, January 19, 2006
Ég get ekki sagt að það sé mikið að frétta af mér, en það helsta er:
Skólinn er farinn að þyngjast aðeins, allt sem maður lærði á síðasta ári er farið að byrja að smella saman....tropi, fori, eso,exo, hyper, hypo, primsmer og allt það sem maður þarf víst að vera ansi klár í. Auk þess erum við nú farinn að taka inn yngri nema og grandskoða hverskonar sjóngalla þau eru með, og einnig kíkjum við í augun á hvoru öðru með einhverjum voða fínum tækjum...voða gaman:). Í dag bættist svo en ein stelpann við í bekkinn minn, og eru þær þar með orðnar 18! en við strákarnir erum bara 5. Ég veit að margir strákar myndu ekki vera neitt að kvarta, en því miður tala konur stundum mikið og þar af leiðandi líður manni eins og maður sé staddur í miðjum saumaklúbbi.
Veðrið er búið að vera mjög fínnst síðan ég kom aftur út eftir jólafríið heima, en nú er farið að snjóa og þ.a.l. er allt í klessu hjá baununum. Spáin segir að það eiga að snjóa næstu daga. Ég er fegin því að snjórinn komi um helgi, því þá þarf maður ekki að standa í því að bíða eftir seinkuðum strætóum og lestum.
Næsta sunnudag er eigum við svo að spila fyrsta leik ársins á móti VLI. Það verður fróðlegt að fylgjast með því, enda eru svona leikir alltaf erfiðir enda menn ekki enþá búnir að ná jólasleninu almennilega af sér. Ég ætla líka rétt að vona að það að við verðum fleiri en 6-7stk eins of við höfum verið í allt of mörgum leikjum í vetur, því það er ekki auðvelt að spila 30+ mín í leik þegar maður er í nákvæmlega engu formi. Ég fékk nú að finna fyrir því á mánudagsæfingunni hversu lélegt formið er og það er langt síðan ég hef verið svona gjörsamlega búinn á því!...hehe
Annars er stefnan sett á rólega helgi, karfa föstudag og sunnudag, er ekki að vinna á laugardag svo að það verður BARA legið í leit....og það er bannað að detta í það....er reyndar boðið í partý á morgun...en ég vil frekar taka hreyfingu fram yfir fyllerí. Það er alltaf hægt að detta í það seinna:)
Þannig að til að stytta þetta aðeins, þá er allt gott að frétta héðan úr baunalandinu.
Jebss.....later folks
Posted at 06:02 pm by ingijons
Permalink
Friday, January 06, 2006
Helvíti er það ljúft að vera búinn kl 12:15 á föstudögum og vera kominn í frí! Það er verið að reyna að draga mig í partý í kvöld...ég kíki sennilega eftir æfingu.
Góða helgi gott fólk
Posted at 01:57 pm by ingijons
Permalink
Thursday, January 05, 2006
Eins og þið sjáið þá er ég komið með nýtt look á síðuna, ég hef aldrei breytt lookinu síðan ég byrjaði með þessu síðu og var orðinn nokkuð þreyttur á því....endilega kommentið um nýja lookið:)
Dagurinn í dag byrjaði ekki nægilega vel....tókst að sofa vel yfir mig...stekk auðvitað á lappir skelli hausnum undir vaskinn og þvæ á mér hárið....hendi nokkrum bókum í og vatnsflösku í tösku. Ég hefði heldur betur átt að flýta mér aðeins hægar....hleyp út og labba af stað út á Metrostöð.....allt í einu fer ég að finna fyrir bleitu á aftanverðum buksunum og er ekki að skilja neitt en held bara áfram....stuttu seinna er bleitan orðin meiri og ég fer að athuga málið betur....anskot!! Þá hafði 0,75l vatnsflaskan dottið á hliðina í töskunni og þar sem henni hafði ekki verið almennilega lokað var kominn þessi myndalegi pollur og allt helv... draslið rennandi blautt....úúúfffff. En sem betur fer fengum við frí klukka 12 í dag svo að dagurinn var ekki alslæmur.
Annars líst mér bara vel á nýja árið, byrjaði mjög vel og heldur því vondandi áfram:)
Á morgun kemst ég loksins á körfuboltaæfingu, og tímabilið að allt það heldur áfram að rúlla, get ekki beðið eftir að koma aðeins við bolta!!
Í lokin ætla vil ég benda fólki á nýjasta linkinn sem er Gummi fyrrverandi "sambýlismaður" Bjössa....hér
Posted at 10:39 pm by ingijons
Permalink
Wednesday, January 04, 2006
Jæja....þá er jólafríið á enda og skólinn byrjaður og alvaran tekin við. Skólinn fór strax af stað 2.jan, en ég kom ekki út fyrr en daginn eftir og missti þar með af nokkrum tímum. Flugið var ágætt miðað við að það væri helvíti hvasst og snjókoma, og auðvitað var klukkutíma seinkun á fluginu vegna veðurs og fólksfjölda...ansi pirrandi að þurfa að húkka úti í vél og bíða.
Jólafríið var hins vegar mjög gott, var reyndar að hjálpa til í búðinni hjá mömmu...þar var allt crazy....og allir vildu náttúrulega láta pakka inn fyrir sig!! Sem betur fer tók það enda og maður gott loksins lagst almennilega í leti og gert ekki nokkurn skapaðan hlut.
Auðvitað var farið á jólaball sem er jú ómissandi partur af jólafríinu þar sem maður náði aðeins að spjalla við fólk sem maður hefur ekki séð lengi. Daginn eftir flaug svo Selma mákona suður til að ná í Patrek í brjáluðu roki, og greyið leit nú ekki vel út þegar hún var loksins lent...hehe
Áramótin voru líka dúndur...mikið af flugeldum var fretað upp, reyndar fór einn ranga leið og sprakk í stofuglugganum c.a. 10 metra frá okkur, en það slasaðist engin við það sem betur fer og maður gat þar með haldið áfram að skjóta. Seinna um kvöldið var farið á áramótaball með Wilson rockness, þar sem maður hélt bara áfram að hitta fólk sem maður hafði ekki séð lengi....mjög gott ball það:)
Því miður flugum við feðgar svo til Reykjavíkur 2. jan, hefði allveg nennt að vera í lengra fríi, en það var víst ekki hægt. Náði því miður heldur ekki að stoppa lengi í bænum í þetta skiftið, náði rétt svo að taka skylduheimsóknirnar því ég átti að mæta í flug snemma daginn eftir.
Svo er það bara að byrjar að venja sig á það að læra aftur og allt það, en það leggst reyndar mjög vel í mig því að við eigum eftir að læra mikið á þessari önn og það verður bara gaman, en þó erfitt líka. Það er líka gaman að hitta alla krakkana aftur sem maður hefur ekki séð lengi...
Best að fara að éta eitthvað.....bæjó
Posted at 06:24 pm by ingijons
Permalink
Saturday, December 24, 2005
Posted at 11:58 am by ingijons
Permalink
Thursday, December 08, 2005
DJÖFULLI SÖKKUÐU UNITED Í
KVÖLD!!!
þAÐ ER VÍST EKKI HÆGT AÐ GERA ALLT GOTT..............
Posted at 12:32 am by ingijons
Permalink
|
|
|
|
 |
|
|
Nafn: Ingi Björn Jónsson
Staður: Kaupmannahöfn Dk
Staða: Optikernemi
|
|
|
 |