|
Í gærkvöldi var sannkallað boltakvöld í gangi.....Ísland að spila í fótbolta og körfu. Því miður gekk ekki vel, reyndar voru strákarnir í körfunni skárri en fótboltanum. En Magni hélst inni í Rockstar svo að það gekk eitthvað vel það kvöldið. Noregsför eftir viku með Óla bróðir og co þar sem brósi er að fara taka þátt í síðustu umferðunum í heimsbikarnum. Vonandi að bíllinn bili ekki eins og vanalega. Pabbahelgi um helgina sem þýðir ferð í sund eða bíó.....það verður jú að hafa drenginn ánægðan :D.....það er svo sem ekkert að því, góð afsökun fyrir mig að fara og sjá teiknimyndir! hehe Það er búið að vera frekar rólegt í vinnunni og maður ætti eiginlega að nota tíman í að sjónmæla vini og vandamenn. Ég þarf að skila 20 ítarlegum sjónmælingum fyrir lok mánaðarins og ég er bara búinn með 2! Jæks! Takk fyrir í dag.....later |
| Name September 9, 2006 12:51 AM PDT OJjj maður...get rétt svo ímyndað mér helv danina! En já það getur verið gaman að hafa svona góða afsökun til að kíkja í bíó....mæli eindregið með Over the hedge.....atriðið þar sem íkorninn fær orkudrykk er algjör killer :D | ||
| Máni September 8, 2006 11:03 AM PDT 90 mínútur af sjálfumglødum, dønskum lýsendum var too much...pirradi mig ólýsanlega ad vid gætum ekki, bara einu sinni, unnid dani í fótbolta. Fór einmitt "med Sebastían" ad sjá Cars sídustu helgi, alltaf gaman ad teiknimyndunum;) | ||
| Leave a Comment: |